Dokumenta Kassel & skúlptúraborgin Münster

50.000 kr.187.600 kr.

30. ágúst – 3/5. september 2017

Myndlistarferð til Kassel & Münster 

Leiðsögumaður/kennari:
Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur
Leiðsögumaður/hópstjóri:
Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarmaður

Möguleiki að skoða eingöngu Dokumenta 14 í Kassel

Hreinsa
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: ,

Myndlistarsýningin Dokumenta í Kassel er í boði á 4ra ára fresti og skúlptúrsýningin í Münster á aðeins 10 ára fresti. Það má því sannarlega segja að sumarið 2017 sé einstakt sumar í evrópsku listalífi.

Á Dokumenta í Kassel gefst einstakt tækifæri til þess að kynnast því sem efst er á baugi í myndlist samtímans og þar má skoða verk marga tugi listamanna á fjölda sýningarstaða um alla borg. Sýningarstjóri hátíðarinnar að þessu sinni er Adam Szymczyk frá Póllandi en sýningin stendur yfir frá 10. júní til 17. September 2017.

Markmiðið er að gefa lifandi innsýn inní frjóan heim samtímamyndlistar eins og hún birtist okkur í dag. Boðið verður uppá á leiðangur undir stjórn Heiðars Kára Rannverssonar listfræðings þar sem haldið verður til Kassel í Þýskalandi á alþjóðlegu myndlistarsýninguna Documenta 14. Sýningin er talin einn merkasti listviðburður í heimi. Hún fer fram á 5 ára fresti í Kassel og hér einstakt tækifæri til að skoða það sem er efst á baugi í heimi myndlistar samtímans.

Efni og inntak Documenta 14 verður kynnt auk þess sem þátttakendur skoða það sem hæst ber á sýningunni. Einnig verður fjallað um þýðingu alþjóðlegra sýninga og vægi þeirra í heimi myndlistarinnar. Þá verður farið yfir sögu Documenta og viðburðurinn settur í samhengi við aðrar alþjóðlegar myndlistarsýningar.

30. ágúst – flug til Frankfurt. Lestarferð til Kassel. Komið sér fyrir á hóteli í Kassel, síðdegisfundur þar sem farið er yfir dagskrá, sameiginlegur kvöldverður.

31.ágúst  Fyrri hluti sýningarinnar skoðaður. Leiðsögn með HKR og ÓV um aðalsýningu Documenta á Lestarstöðinni í Kassel, Fridericianum, Documenta-Halle og Neue Galerie, tveimur stórum söfnum. Samtal við þáttakendur. Frjálst kvöld.

1. september – Seinni hluti sýningarinnar skoðaður. Leiðsögn með HKR og ÓV um Neue-Neue Gallerie, Orangerie, Brüder Grimm-safnið, útiverk í garðinum Karlsaue og valin verk utan aðalsýningastaða Documenta. Sameiginlegur kvöldverður í Kassel.
fyrirlestur: Saga Documenta, efni og inntak Documenta 14
Í fyrirlestrinum verður fjallað um sögu Documenta sem hófst í Kassel árið 1955 og er jafnan talin einn merkasti listviðburður í heimi.  Rætt verður um form og einkenni sýningarinnar og hún sett í samhengi við aðrar alþjóðlegar myndlistarsýningar, m.a.  Feneyjartvíæringinn. Einnig verður fjallað um efni og inntak Documenta14 en titill hennar er Learning from Athens. Þýðing og vægi sýninga eins og Documenta í heimi samtímamyndlistarinnar verða rædd og sú mikla fjölgun stórra alþjóðlegra sýninga á síðustu áratugum. Við veltum upp spurningum um alþjóðavæðingu myndlistarinnar.

2. september  frjáls dagur til að skoða Dokumenta í Kassel (með Heiðari Kára) / ekið til Münster (með Ósk)

3. september — heimferð frá Frankfurt / ekið er á milli listaverka við jaðar borgarmarkanna, td. verk Hreins Friðfinnssonar skoðað

4. september — dagur til að skoða ný og eldri verk í skúlptúrborginni Münster. Sameiginleg kvöldmáltíð í Münster.

5. september — lestarferð til Düsseldorf eða Frankfurt, flogið til baka til Íslands

Leiðsögumaður er Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur
Heiðar Kári lauk MA prófi í listfræðum frá Háskólanum í Amsterdam árið 2012 og hefur starfað á sviði íslenskrar myndlistar um árabil. Hann stýrði fræðslu- og viðburðardagskrá Listasafns Reykjavíkur á árunum 2013-2016, en er nú sjálfstætt starfandi listfræðingur og sýningarstjóri.

Leiðsögumaður/hópstjóri er Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarmaður og ferðaskipuleggjandi
Ósk lauk MA prófi í myndlist við Listaakademíuna í Berlín og hefur látið til sín taka á sviði myndlistar hérlendis og erlendis. Hún hefur starfað við leiðsögn og kennslu í 25 ár og skipulagt ferðir námskeið í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listasafn Reykjavíkur.

Verð Kassel: 98.800
Verð Kassel & Münster: 179.300
án flugs miðað við tvo í herbergi
Verð á flugi um 40 – 50.000 báðar leiðir með sköttum. Við aðstoðum við bókun. Upplýsingar info@halendisferdir.is eða í síma 6914212

innifalið:
2 leiðsögumenn/kennari/hópstjóri
Gisting og morgunverður 3 nætur á hóteli í Kassel
Leiðsögn um Dokumenta 14
Fyrirlestur
aðgangur að Dokumenta14
Kvöldverður síðasta kvöldið
Lestarferðir á milli Frankfurt og Kassel

viðbótardagar í Münster;
Leiðsögumaður
Akstur frá Kassel til Münster
Akstur á milli verka í útjaðri Münster
Gisting og morgunverðurí 3 nætur á 4* hóteli í miðbæ Münster
Kvöldverður síðasta kvöldið
Lestarferð til Düsseldorf / Frankfurt