Lönd og strönd: Marrakesh, Atlasfjöllin og Essaouira — október 2022

100.000 kr.259.900 kr.

Miðaldaborgin Marrakesh, gönguferð í Toubkal fjallgarðinum, hippamenning í strandbænum Essaouira.  

15. – 23. október 2022

Fjöldi: 4 – 14 manns

Hreinsa
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , ,

Leiðin liggur til Marrakesh, miðaldaborgina sem ilmar og iðar af mögnuðu mannlífi. Borgin er sannkallaður töfraheimur. Síðan tekur við leiðangur í Há-Atlasfjöllin þar sem við kynnumst við allt öðrum víddum mannlífs og náttúru. Síðasti viðkomustaður er afslappaði strandbærinn Essaouira, paradís hippanna. 

Leirhús Norður-Afríkubúa eru byggð á hefð hefur haldist óbreytt frá því á dögum Krists. Við heimsækjum heimamenn og fáum innsýn inní heimilisiðnað sem lifir góðu lífi í Marokkó líkt og fyrr á öldum á Íslandi.

Ferðin er leiðangur sem farinn er í tímavél, stefnt er nokkrar aldir aftur í tímann og við tökum með okkur til baka aldagamla þekkingu fortíðar inn í framtíðina.

15. okt: Ferðadagur (möguleiki að koma fyrr til Marrakesh)
Gestir sóttir á flugvöllinn í Marrakesh. Heimili okkar í Marrakesh er svokallað riad hefðbundið marokkóskt fjölskylduhús með garði í miðju, opið til himins og þaksvölum. Við komum okkur fyrir í riadinu sem er í medinuni, gamla bænum innan borgarmúranna.

16. okt: Könnunarleiðangur undir leiðsögn staðkunnugs heimamanns um ævintýraborgina Marrakesh. Við endum daginn á torginu fræga Djama el Fna þar sem við kynnumst alþýðuleikhúsi sem hefur starfað látlaust í 1000 ár.

17 okt: Frjáls dagur í ævintýraborginni. Njótum þess að reika um souk, markaði og garða, tilvalið að skoða kaktusagarð og safn Yves St. Laurent, Jardin Majorelle. 

18. okt: Við kveðjum ævintýraborgina og höldum til Há-Atlasfjalla. Gangan hefst í litlu fjallaþorpi þar sem við hittum leiðsögumenn okkar. Við fylgjum múldýrastígum yfir dali og hálsa, eikar- og einiberjaskóga. Næturstaður í heimkynnum Berba í 1600m hæð.

19. okt: Leiðin liggur áfram um þorp og dali. Við höldum áfram yfir beitilönd og skoðum falleg fjallaþorp á leiðinni. Þar vaxa valhnetu- epla og alls kyns ávaxtatré, heimamenn rækta sína aldingarða að gömlum sið. Tilvalið að fara í hefðbundið hammam í lok dags. Um 6 tíma ganga.

20. okt: Áfram er haldið um hæðir og hálsa þar sem vatni er veitt yfir grösuga dali. Síðasta nóttin í fjallasal að loknum góðum göngudegi.

21. okt: Við kveðjum heimkynni Berba, ferðumst milli fjalls og fjöru og endum daginn í litla fallega strandbænum Essaouira.

22. okt: Dagur til að kynnast slakri undraveröld Essaouira 

23. okt: Heimferð frá Essaouira eða aukadagur í borginni

Verð: 225.000
aukakostnaður vegna sérherbergis: 37.600

Innifalið í ferð:

  • Akstur frá flugvelli á hótel og frá hóteli á flugvöll
  • Allur akstur í ferð
  • 3 gistinætur með morgunverði í riadi í Marrakesh (fyrir og eftir leiðangur) 2 kvöldverðir í Marrakesh.
  • 3 gistinætur á gistiheimili í Atlasfjöllum með fullu fæði
  • 2 gistinætur í Essaouira + hátíðarkvöldverður síðasta kvöldið 
  • Farangurstrúss, matseld og lókal fjallaleiðsögumenn í leiðangri
  • Íslenskur fararstjóri (Ósk Vilhjálmsdóttir)

Fjöldi: 6 – 14 manns

*Flugið er ekki innifalið en við aðstoðum við bókun. 
Á leiðinni út, þann 15. október er td. í boði ódýrt kvöldflug með millilendingu í Milano og lent morguninn eftir í Marrakesh:  Aðeins dýrara morgunflug í gegnum París með lendingu samdægurs í Marrakesh:

 

Á heimleiðinni býðst mjög hentugt flug frá Essaouira með millilendingu í París. Bæði 23. og 24. október:

 

 

frekari upplýsingar: osk@wanderlust.is eða í síma 6914212

Irma Erlingsdóttir

Að heimsækja Marokkó felur í sér ferðalag margar aldir aftur í tímann og kennslustund í samtímasögu og –pólitík. Í ferðinni með Hálendisferðum eru öll skilningarvitin virkjuð. Við nutum sérstæðs landslags, í fjallahéruðum, í eyðimörkinni og við sjávarsíðuna, og ævintýralegrar byggingarlistar innan húss sem utan. Umgörð sem er studd af upplifun af magnaðri matarmenningu þessa lands og sögunni allri í þátíð og nútíð.“

Irma Erlingsdóttir
Björg Vilhjálmsdóttir

Ég upplifði einstakt ferðalag! Ósk skipulagði Marokkó ferðina af mikilli snilld og ég get ekki þakkað henni nægilega fyrir allt ævintýrið. Mér finnst eins og ég hafi ekki komið söm heim. Hún kynnti fyrir okkur staði sem flestir ferðamenn sjá ekki. Við fórum inná heimili fólksins í Hamingjudalnum, þvældumst um ævintýralega mannþröngina í medínunni í Fes og lékum okkur við kraftmikið ölduhafið í Essaouira, sögufrægu borginni við Atlandshafið. Ég er djúpt snortin. Takk fyrir mig!

Björg Vilhjálmsdóttir
Þórhallur Vilhjálmsson & Sólveig Bjarnadóttir

Ferðin með Hálendisferðum til Marokkó 25. mars til 10. apríl 2016var í alla staði dásamleg og upplifun sem við þráum og eigum eftir að njótalengi. Allt frá upphafi var ljóst að við vorum í góðum höndum frábærsfararstjóra, Óskar Vilhjálmsdóttur, sem af fagmennsku og útsjónasemi leiddiokkur um hinn ótúrlega fjölbreytileika í Marokkósku samfélagi. Ekki sakaðiheldur að félagsskapurinn var einstakur. Einn helsi styrkleiki ferðarinnarfólst í því að dvelja hæfilega lengi á hverjum stað og njóta leiðasagnarheimamanna. Við erum komin á bragðið og erum þegar farin að hlakka tilnæstu ferðar undir leiðsögn Óskar.

Þórhallur Vilhjálmsson & Sólveig Bjarnadóttir
Bóka ferð:

Greiða staðfestingargjald, Greiða ferð, Aukagjald einn í herbergi