Ferðinni er heitið í Friðlandið Fjallabak og hlaupið um svarta sanda, Hekluhraun og eitt mesta háhitasvæði í heimi Austur- og Vestur-Reykjadali. Hlaupið er um óstikaðar leiðir sem fáir þekkja, lítt þekktar náttúruperlur utan alfaraleiðar. Ferðin endar í Landmannalaugum þar sem kostur gefst á heitu fjallabaði áður en haldið er til byggða.
Tilvalið fyrir þá sem vilja sameina hlaup og fjallamensku. Hlaupið verður 25-35 km á dag en á leiðinni gefst nægur tími til að njóta náttúrufegurðar og öræfakyrrðar.
Verð: 73.600 + VSK
Innifalið í verði:
- 2 leiðsögu-hlauparar
- 1 nótt í skála
- Rútuferðir
- Trúss með mat og farangur
- Aðstöðugjald í Landmannalaugum
- Fullt fæði í 2 daga, frá hádegi á degi 1 til hádegis á degi 2
- Yoga kvölds og morgna
1. dagur:
Hópurinn hittist á Selfossi kl. 9 þar sem við eigum stefnumót við bílstjóra og fjallatrukk. Ekið í Friðlandið Fjallabak að rótum Laufafells við Markarfljót. Hlaupið um eitt magnaðasta háhitasvæði í heimi, Austur- og Vestur Reykjadali. Í góðu skyggni má njóta útsýnis yfir flesta jökla landsins. Áfram um Hrafntinnuhraun, Pokahrygg og niður í Dómadal. Gist í skála við rætur Loðmundar. Um 30 – 35 km hlaup með uþb. 900 m heildarhækkun.
2. dagur:
Hlaupið úr Landmannahelli með Loðmundi framhjá Eskihlíðarvatni að Hnausapolli, þaðan að Ljótapolli og í Landmannalaugar. Möguleiki á sturtu og og fjallabað í Landmannalaugum áður en ekið er til baka til byggða. 17-18 km hlaup.